|
|
|
|
|
||||||||||||||||||||
|
|
Á undanförnum árum hafa sífellt fleiri fyrirtæki nýtt sér útgáfu- og hönnunarþjónustu Nýrra vídda. Skoðaðu vefinn og athugaðu hvað við getum gert fyrir þig. Fyrirtækjagjafir. Vatnslitamyndir Kristínar Þorkelsdóttir og ljósmyndastækkanir Ragnars Th. og Harðar Daníelssonar. Glæsileg dagatöl og jólakort eru sérsvið okkar. Á vefnum má sjá dagatölin og helstu jólakortin. Dagatöl og jólakort eru einnig sérunnin sé þess óskað. Ljósmyndabækur. Reykjavík, á vit nýrra alda. Ragnar Th. Sigurðsson og Ari Trausti Guðmundsson. Seiður Íslands, Þingvellir og Seiður Íslands Snæfellsnes. Hörður Daníelsson og Kristín Þorkelsdóttir. Frábærar bækur á góðu verði. Önnur kort. Vatnslitamyndir Kristínar Þorkelsdóttur á afar vönduðum kortum. Myndir Sigrúnar Olsen hafa einnig ratað á kort hjá Nýjum víddum. Póstkort. Ímynd Íslands á póstkortum. Póstkort eru einnig sérframleidd náist samningar þar um. Plaköt. Einnig sérframleidd eða gefin út í samstarfi við aðra. Sérverkefni. Hönnun og prentumsjón með verkefnum af öllum stærðargráðum fyrir stór sem smá fyrirtæki. Ráðstefnugögn. Boðskort, ráðstefnumöppur, dagskrár, gjafir o.fl. fyrir ráðstefnur. Sérmerkingar. Við erum sérhæfð í að merkja fyrirtækjum vörur okkar á vandaðan og glæsilegan hátt. Stafræn prentun gerir okkur kleift að prenta boðskort, nafnspjöld, matseðla, dagskrár, umslög o.fl. í litlu upplagi, miklum gæðum og góðu verði.
Myndir og hugmyndir. Ef þú hefur hugmyndir eða ert
að leita að hugmyndum getum við aðstoðað við að koma þeim í framkvæmd.
Réttu myndirnar fyrir þig gætu einnig verið í glæsilegu myndasafni okkar.
|