|
|
|
|
|
||||||||||||||||||||
|
|
Árið 1989 létu þáverandi eigendur auglýsingastofunnar AUK hf., þau Kristín Þorkelsdóttir og Hörður Daníelsson, útgáfudrauma sína til margra ára rætast. Fyrsti útgáfugripurinn var dagatalið Af ljósakri með panoramamyndum eftir Hörð í hönnunarumgjörð Kristínar. Síðar tók Daði Harðarson til starfa við útgáfuna og í apríl 1993 stofnuðu þau Kristín hönnunar- og útgáfufyrirtækið Nýjar víddir ásamt Gunnari H. Gunnarssyni. |