Nýjar víddir
Forsaga
Fréttir
Starfsfólk
Sölustaðir

Hafðu samband

Vörur og þjónusta
Bækur
Dagatöl
Af ljósakri
Borðdagatal
Myndaspjald
Sérunnin dagatöl
Eilífðardagatal 101
Verð
Jólakort
Jólakort - stærð 2
Jólakort - stærð 3
Jólakort - stærð 4
Jólakort - verð
Póstkort
Póstkort - stærð 1
Póstkort - stærð 2
Póstkort - verð
Kristín Þorkelsdóttir
Vatnsliturinn
Sýning í Hafnarborg 2002


Þ ö r f i n

Vatnsliturinn á hug minn sem efni og aðferð við myndsköpun. Hann fer vel í farangri þess sem leitar innblásturs í náttúrunni og ég þarf á náttúrunni að halda. Til að nálgast kjarnann í sjálfri mér og til að nálgast óendanleg tilbrigði sköpunarverksins sem við höfum enn þá aðgang að hér á Íslandi. Til að virkja innsæi mitt og vera heil.

Ég samsama mig eðli vatnslitarins, sérstaklega flæðinu og málunarferlinu sem hægt er að lesa úr verkunum. Vatnsliturinn er blíður, blæbrigðaríkur og gjöfull en vandmeðfarinn. Það þarf að gefa sér tíma til að kynnast honum á hans forsendum, því hann þolir hvorki hjakk né óþolinmæði. "Allt hefur sinn tíma" eru skilaboðin til mín!

Vinnustofa mín er úti - á fáförnum vegaslóðum og útskotum - án veggja á sumrin - í skjóli bílsins um vetur - í síbreytilegu umhverfi. Myndirnar mínar þróast með vinnu og í undirvitundinni. Stundum er ég á undan sjálfri mér og geri myndir sem opnast fyrir mér löngu síðar. Aðalatriðið er að vinna og mynda tengsli. Leita örvunar og opna hugann fyrir gjöfum dagsins, nýrri sýn. Þróa tjáninguna og halda ferðinni áfram.

Kristín                   



Óheimilt er að nota efni af vefnum án leyfis Nýrra vídda. Tenglar á vefinn eru kærkomnir.