|
|
|
|
|
||||||||||||||||||||
|
|
Það er komið vor og sýning í vændum.
Ég velti salnum mikið fyrir mér. Litir rósanna
sækja að mér og vilja vera með á sýningunni.
- Nú finnst mér vera kominn tími til að mála
nýjar rósamyndir og hef í huga gluggastærðirnar
í gamla Hafnarborgarhúsinu sem gengur inn í sýningarsalinn.
Vil láta sýninguna njóta fallega bogaformsins um
um leið og ég fagna sumarkomunni með lífsþyrstum
rósunum. V e t r a r b i r k i
Myndin er máluð heima í stofu en það er óvenjulegt, því yfirleitt mála ég náttúrumyndir mínar úti undir berum himni eða inni í bíl. Ég studdist við nokkrar ljósmyndir Harðar, sem er líka óvenjulegt, en hann er með Þingvallabirki á heilanum. Ég leik mér að skriðulu birkinu og geri mér mat úr berkinum. Mér finnst teikningin sjálf og litaskiptin vera aðall þessarar myndar. Myndin er máluð snemma árs 1996. |